Prófíll

  • Nafn: Bjarni Páll Kristjánsson
  • Netfang: bjadni@gmail.com
  • Stađur: RVK
  • Atvinna: Nemi/Krabbameinssjúklingur
  • Hjúskaparstađa: Lausu
  • Annađ: www.myspace.com/panzerfausthamster

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

19.janúar afmćlisdagur Bjarna Páls

19. janúar 2012 klukkan 13:04
Í dag hefði Bjarni Páll orðið 24 ára. Þegar hann fermdist var til gamans sett upp getraun í veislunni þar sem gestir áttu að segja hvað þeir héldu að hann yrði þegar hann yrði stór.Ýmsar tillögur komu fram en margir voru á því að hann veldist til einhverra starfa með fólki,lögga,læknir,kennari, hann var þannig. Þá hvarflaði ekki að nokkrum manni að þessi sómadrengur næði aðeins 20 ára aldri.Lífið heldur áfram, en það sem fylgir svona missi er að enn er maður að velta þessu sama fyrir sér, hvað væri hann að gera í dag? hvernig liti hann út?ætti hann fjölskyldu?  :=)
Minningarnar ylja og vekja gleði en sorgin er söm og söknuðurinn jafn sár.
Til hamingju með daginn elsku drengurinn okkar -Bjarnamamma
Bjarni Páll Kristjánsson
2 athugasemdir

Bjarnakaffi sunnudaginn 22. janúar

16. janúar 2012 klukkan 21:04
Kćru ćttingjar og vinir.
Nú er komiđ ađ Bjarnakaffi, verđum međ opiđ hús og heitt á könnunni eftir hádegi nk.sunnudag 22.janúar en Bjarni Páll hefđi orđiđ 24 ára 19.janúar. Vonandi sjáum viđ ykkur sem flest, hlökkum til, fjölskyldan á Ćgisíđu 107.... Nánar
Bjarni Páll Kristjánsson
1 athugasemd

15.júlí.

15. júlí 2011 klukkan 00:24
Þá er þessi mikli örlagadagur upprunninn enn á ný - þrjú ár síðan Bjarni Páll kvaddi þennan heim á Landspítalanum aðfaranótt 15.júlí rétt fyrir klukkan fimm. Sumarnóttin var eins falleg og þær gerast á Íslandi, glampandi sól komin upp, fuglarnir farnir að láta á sér kræla, kyrrðin alger en yfir okkur grúfði myrkur og ótrúleg sorg. Manni finnst eins og þetta hafi gerst í gær og trúir því tæpast að árin séu orðin þrjú, óraunveruleikinn er alltaf jafn mikill. En minningin um drenginn okkar góða er ljóslifandi og söknuðurinn óbærilegur. Og við höldum áfram að lifa, minnast hans og telja árin frá því að hann var tekinn í burtu.  
Bjarni Páll Kristjánsson
Engin athugasemd

Bjarnakaffi 2011

11. janúar 2011 klukkan 16:14
Ţađ verđur opiđ hús sunnudaginn 16. janúar 2011.







Ekkert vesen, bara gaman saman!... Nánar
Bjarni Páll Kristjánsson
4 athugasemdir

Kominn heim

17. júlí 2010 klukkan 23:46
Núna á fimmtudaginn 15. júlí, á dánardćgri Bjarna Páls, var öskukeriđ jarđsett í Sóllandi, duftgarđi í Fossvogskirkjugarđi. Bjarni Páll hvílir ţar viđ hliđina á Geir afa sem dó í fyrra og voru kerin ţeirra jarđsett saman. Nýja heimilisfangiđ er Hólmagröf A10-8.... Nánar
Bjarni Páll Kristjánsson
1 athugasemd

Bjarnakaffi - opiđ hús á sunnudaginn 17. janúar

12. janúar 2010 klukkan 23:41
Ţađ verđur opiđ hús - Bjarnakaffi - eftir hádegi á sunnudaginn 17. janúar. Enginn sérstakur tími, viđ verđum heima allan daginn og vonumst til ađ sjá sem flesta... Nánar
Bjarni Páll Kristjánsson
3 athugasemdir

Bjarnabrun

09. júlí 2009 klukkan 16:32
Okkar ástkćru Ćgisbúar gera ţađ ekki endasleppt. Í minningu Bjarna Páls hafa ţau nú skipulagt Bjarnabrun, hjólreiđaferđ yfir Sprengisand dagana 10.-15. júlí.... Nánar
Bjarni Páll Kristjánsson
12 athugasemdir

Gleđilegt ár

15. janúar 2009 klukkan 23:32
Komið þið sæl.
Við fjölskylda Bjarna Páls óskum ykkur öllum gleðilegs árs með hjartans þökk fyrir hlýju og stuðning. Síðastliðið ár var það erfiðasta í lífi okkar allra þó ýmislegt höfum við reynt þau sem eldri erum orðin. Sú raun að missa manneskju eins og Bjarna Pál er nokkuð sem ekki er hægt að lýsa svo nokkur skilji nema sá sem reynt hefur. En áfram verðum við að halda og hugga okkur við fallegar minningar um fallegan dreng. Jólin og áramótin komu og fóru, við fjölskyldan reyndum að njóta tímans eins og hægt var en að sjálfsögðu voru tilfinninga blendnar. Sérstaklega þóttu mér áramótin erfið en þau voru tími Bjarna Páls. Frá því hann var smástrákur elskaði hann allt tengt áramótunum, sprengingar og læti það var hans uppáhald. Ánægðastur var hann áramótin sem hann var á öryggisvakt og svaf hreinlega í flugeldageymslu Ægisbúa, þar leið honum vel.
Á aðfangadagsmorgun áttum við yndislega stund með Bjarna Páli eða kerinu hans öllu heldur í lítilli kapellu við Fossvogskirkju. Á eftir fóru svo allir heima á Ægisíðuna í hádegismat, það var ótrúlega gott að hafa allt fólkið í kringum sig.
Í dag er hálft ár frá því að hann hvarf frá okkur og á mánudaginn er 19.janúar þá hefði Bjarni Páll orðið 21 árs. Af því tilefni ætlum við að hafa "Bjarnakaffi" eftir hádegi á sunnudaginn (18.janúar) enginn sérstakur tími, húsið er opið og við heima vonandi kíkja sem flestir við. 
Bjarnamamma. 
Bjarni Páll Kristjánsson
5 athugasemdir

Ţakkarorđ

19. október 2008 klukkan 12:18
Kćra samferđafólk.

Frá andláti elsku drengsins okkar Bjarna Páls hefur umhyggja ykkar og hlýja umvafiđ okkur og veitt fjölskyldunni ómetanlegan styrk á erfiđum tímum.... Nánar
Bjarni Páll Kristjánsson
3 athugasemdir

Útför Bjarna Páls

12. ágúst 2008 klukkan 17:16
Komið þið sæl öll sömul. Þar sem enn eru fjölmargar heimsóknir á síðuna á hverjum degi ákváðum við að halda henni aðeins við og segja aðeins frá útförinni og setja inn nokkrar myndir frá henni. Útför Bjarna Páls var gerð frá Neskirkju 31. júlí að viðstöddu miklu fjölmenni. Segja má að setið og staðið hafi verið í hverju horni. Það sem okkur þótti einkennandi svona eftir á að hyggja var mikill fjöldi glæsilegra ungmenna en Bjarni Páll var forríkur af vinum úr skólum, skátunum, tónlistinni og víðar að. Sr.Örn Bárður Jónsson jarðsöng og má finna minningarorð hans á slóðinni http://ornbardur.annall.is/2008-07-31/bjarni-pall-kristjansson-1988-2008/ bæði texta og hljóðupptöku (ath.minningarorðin eru í tveimur hlutum). Fjöldi fólks hafði orð á því við okkur foreldra Bjarna Páls eftir útförina hvað þeim þótti sr.Örn Bárður komast einstaklega vel frá þessu erfiða verkefni. Sr. Sigfús Kristjánsson skáti og Ægisbúi las ritningarlestur en hann var sveitarforingi Bjarna Páls í eina tíð. Allur tónlistarflutningur var í höndum vina og félaga Bjarna Páls og fjölskyldu. Fyrir athöfn lék Ungfónía, sinfóníuhljómsveit unga fólksins undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar og voru einleikarar á fagott, klarinett, hörpu og sunginn var einsöngur. Tveir kórar sungu við athöfnina, skólafélagar og vinir Bjarna Páls úr Hamrahlíðarkórnum sungu undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur og Kór Neskirkju, kórs Bjarnamömmu söng undir stjórn organistans Steingríms Þórhallssonar. Flutningurinn allur var einstaklega fallegur, bæði vel leikið og sungið. Þarna er á ferð mikið og glæsilegt hæfileikafólk sem leysti sitt hlutverk af stakri prýði og sá maður á hverju andliti að allir lögðu sig fram um að gera sitt besta. Steingrímur flutti einnig gullfallegt lag á píanó sem hann samdi og tileinkaði Bjarna Páli. Lagið kallar hann "Fararbæn í tónum" og verður það dýrmæt minning okkar fjölskyldunnar í framtíðinni um drenginn okkar yndislega. Síðast en ekki síst lék Kristján Matthíasson, fiðlukennari Bjarna Páls í mörg ár, einleik á fiðlu. Segja má að Kristján hafi með þolinmæði sinni og góðmennsku gert það að verkum að Bjarni Páll entist í fiðlunámi sem aftur veitti honum og okkur fjölskyldunni ófáar ánægjustundir sem eru í dag dýrmætar minningar.  

Skátar voru fjölmennir og settu mikinn svip á athöfnina Bjarna Páli til mikils sóma. Stóðu þeir heiðursvörð við upphaf athafnar og einnig við lok hennar eftir að hafa borið kistuna út í góða veðrið þar sem signing fór fram undir "Kvöldsöng skáta" sem leikinn var á trompet af Baldvini Oddssyni, ungum og efnilegum félaga úr Ungfóníu. Þó svo að djúp og mikil sorg hafi ríkt við athöfnina var hún einstaklega falleg og skilur eftir hjá okkur ljúfsárar og fallegar minningar. En það er nú einu sinni þannig að þar sem Bjarni Páll kemur við sögu ríkir einatt gleði og þar sem heyra mátti hlátur og kátínu í erfidrykkjunni sem haldin var í safnaðarheimilinu að athöfn lokinni var verið að segja sögur af Bjarna Páli eða hafa eftir honum, þannig var Bjarni Páll og með gleði og kátínu minnumst við hans best. 

Ykkur öllum sem komuð að útför Bjarna Páls eru færðar einlægar þakkir fyrir. Allir voru boðnir og búnir til aðstoðar og allir gerðu sitt besta til að gera þessa stund okkur öllum ógleymanlega. Allt þetta hefur  veitt okkur mikla huggun og styrk og sefað mesta sársaukann sem stundum er þó óendanlega mikill. 

Frá andláti Bjarna Páls og til dagsins í dag hefur fjölskyldunni borist földi kveðja í formi blóma, korta, kerta, bóka, skeyta, símtala, heimsókna og annara gjafa sem of langt mál er upp að telja, frá kunnugum jafnt sem ókunnugum. Öll þessi umhyggja hefur veitt okkur gríðarlegan styrk og huggun, að finna alla þessa væntumþykju og samhug og viljinn til að hjálpa hefur fleytt okkur áfram á þessum erfiðu tímum. Fyrir allt þetta getum við aldrei fullþakkað, segjum aðeins af vanmætti, hjartans, hjartans þakkir fyrir okkur. 

Guð blessi ykkur öll. Bjarnamamma og fjölskylda.    
Bjarni Páll Kristjánsson
10 athugasemdir